Nokia 5630 Notendahandbók
1. útgáfa
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-431 er í 
samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í tilskipun 
1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á 
slóðinni www.nokia.com/phones/declaration_of_conformity/.
© 2009 Nokia. Allur réttur áskilinn.
Nokia, Nokia Connecting People, and Nokia Care eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. 
Nokia tune er tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta 
verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil 
nema að fyrirfram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
This product includes software licensed from Symbian Software Ltd © 1998-2009. 
Symbian and Symbian OS are trademarks of Symbian Ltd.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright © 1997-2009. 
Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
Java and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of 
Sun Microsystems, Inc.
Portions of the Nokia Maps software are © 1996-2009 The FreeType Project. All rights reserved.
This product is licensed under the MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) for personal and 
noncommercial use in connection with information which has been encoded in compliance with the 
MPEG-4 Visual Standard by a consumer engaged in a personal and noncommercial activity and (ii) for use 
in connection with MPEG-4 video provided by a licensed video provider. No license is granted or shall be 
implied for any other use. Additional information, including that related to promotional, internal, and 
commercial uses, may be obtained from MPEG LA, LLC. See <http://www.mpegla.com>.
Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs 
í tengslum við upplýsingar sem hafa verið kóðaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4Visual Standard af 
neytanda í persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4 
hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar 
annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í auglýsingum, innan fyrirtækis og í 
viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá <http://www.mpegla.com>.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og 
úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS 
UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI 
EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER 
ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA 
INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ 
Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA 
DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. 
Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia söluaðila þínum.
Útflutningstakmarkanir
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í 
Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru 
óheimilar.
ÁN ÁBYRGÐAR
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til og vera 
í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða 
hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð 
við notendur, virkni þessara forrita eða þeim upplýsingum sem fylgja forritunum eða efninu. 
Nokia veitir enga ábyrgð á þessum forritum þriðju aðila.
MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS OG ÞAU 
KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ 
MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN VIÐURKENNIR JAFNFRAMT 
AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, 
BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, 
SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI 
GEGN EINKARÉTTI, HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA 
AÐILA. 
1. útgáfa
4