Staðsetning loftneta
Bluetooth-loftnet (1)
Farsímaloftnet (2)
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Líkt og gildir um 
öll önnur tæki sem senda eða taka við útvarpsbylgjum ætti 
að forðast að snerta loftnetið að óþörfu við móttöku eða 
sendingu útvarpsbylgna. Snerting við slíkt loftnet hefur 
áhrif á sendigæði og getur valdið því að tækið noti meiri 
orku en annars er nauðsynlegt og getur minnkað líftíma 
rafhlöðu þess.