■ Samskipanastillingar
Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, tölvupóst, samstillingu, straumspilun 
og vafra, verður að slá inn réttar samskipanastillingar í tækinu. Tækið kann að 
setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra, margmiðlunarboð, aðgangsstað og 
straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem notað er. Ef ekki, þá er hægt að nota 
Stillingahjálpina til að setja upp stillingarnar. Stillingarnar er hægt að fá í 
samskipanaboðum og vista þær í símanum. Nánari upplýsingar má fá hjá 
þjónustuveitunni eða næsta viðurkennda söluaðila Nokia.
Þegar stillingarnar berast í samskipanaboðum, og þær eru ekki vistaðar og 
virkjaðar sjálfvirkt, birtist 
1 ný skilaboð
á skjánum. Veldu
Sýna
>
Valkostir
>
Vista
til að vista stillingarnar. Þú gætir þurft að slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá 
þjónustuveitunni.