
11. Heimakerfi
Tækið styður UPnP (Universal Plug and Play). Með því að nota aðgangsstaðartæki
eða beini fyrir þráðlaust staðarnet geturðu búið til heimanet og tengt samhæf
UPnP-tæki við það, líkt og tækið þitt, tölvu, prentara, hljóðkerfi eða sjónvarp, eða
hljóðkerfi/sjónvarp sem er búið þráðlausum móttakara.
Til að geta notað þráðlausa staðarnetsvalkostinn í tækinu þínu á heimaneti þarf
þráðlaus staðarnetstenging að vera sett upp í heimahúsi og önnur UPnP-
heimatæki að vera tengd við það.
Heimanetið notar öryggisstillingar þráðlausu staðarnetstengingarinnar. Notaðu
heimanetið á þráðlausu staðarneti með aðgangsstaðatæki og með kveikt á
dulkóðun.
Hægt er að samnýta skrár sem eru vistaðar í Galleríinu í öðrum UPnP-tækjum
á heimanetinu. Til að skilgreina stillingar heimanetsins skaltu velja
>
Heimakerfi
>
Stillingar
. Einnig er hægt að nota heimanetið til að skoða, spila,
afrita og prenta samhæfar skrár í
Gallerí
.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum til að
auka öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur
úr hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.
Tækið er aðeins tengt heimakerfinu ef þú samþykkir beiðni um tengingu frá öðru
samhæfu tæki eða velur þann kost í
Gallerí
að skoða, spila, prenta eða afrita skrár í
tækinu eða leitar að öðrum tækjum í möppunni
Heimakerfi
.