12. Myndavél
Tvær myndavélar eru í tækinu til að taka myndir og taka upp hreyfimyndir. Aftan á 
tækinu er myndavél með hárri upplausn og myndavél með minni upplausn er 
framan á því.
Tækið styður myndupplausn sem er 2048x1536 pixlar í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin í 
þessari handbók getur virst önnur.
Myndir og myndinnskot vistast í viðeigandi möppum í Galleríinu.
Hægt er að senda myndir og myndskeið með margmiðlunarboðum, sem viðhengi 
í tölvupósti eða með Bluetooth. Einnig er hægt að hlaða þeim upp í samhæft 
netalbúm.