Nokia 5630 XpressMusic - Myndavélarstillingar

background image

Myndavélarstillingar

Hægt er að velja á milli tveggja stillinga fyrir kyrrmyndir: tækjastikustillinga og
aðalstillinga. Til að nota tækjastikustillingarnar, sjá „Tækjastika“ á bls. 47.
Tækjastikustillingarnar breytast aftur yfir í sjálfvaldar stillingar þegar myndavélinni
er lokað, en aðalstillingarnar eru þær sömu þar til þeim er breytt aftur.