Smáforrit
Tækið styður smáforrit (widgets). Smáforrit eru lítil vefforrit sem hægt er að hlaða 
niður og flytja margmiðlunarefni, fréttastrauma og aðrar upplýsingar, svo sem 
veðurfréttir, í tækið. Uppsett smáforrit birtast sem sérstök forrit í möppunni 
Forrit
>
Uppsetn.
.
Hægt er að hlaða smáforritum niður með forritinu Til niðurhals eða af netinu.
Sjálfgefinn aðgangsstaður fyrir smáforrit er hinn sami og í vafranum. Sum 
smáforrit geta uppfært upplýsingar í tækinu sjálfkrafa ef þau eru virk í 
bakgrunninum.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar að 
nota smáforrit. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitunni.