Uppsetning forrits
Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur 
tækið beðið þig um að hlaða henni niður.
1. Til að setja upp forrit eða hugbúnaðarpakka skaltu velja
Uppsetn.skrár
og velja
uppsetningarskrá. Forrit sem sett eru upp á minniskortinu eru merkt með
.
2. Veldu
Valkostir
>
Setja upp
.
Þú getur einnig leitað í minni tækisins eða á minniskortinu, valið forritið og ýtt 
á skruntakkann til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu 
uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða 
vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið 
ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
Java-forrit geta reynt t.d. að koma á gagnatengingu eða senda skilaboð. Til að 
breyta leyfisveitingum uppsetts Java-forrits og tilgreina hvaða aðgangsstað 
forritið á að nota skaltu velja 
Uppsett forrit
, fletta síðan að forritinu og velja
Opna
.
Uppsetningarskrár (.sis) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp á 
samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt að vista 
aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia PC Suite til að taka öryggisafrit af 
uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota Skráastjórann 
til að eyða uppsetningarskránum úr minni tækisins. Sjá „Skráastjóri“ á bls. 62. Ef .sis-skráin 
hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.
62
U m s j ó n m e ð g ö g n u m