PIN-númer
PIN-númerið (Personal Identification Number) eða UPIN-númerið (universal 
personal identification number) (4-8 tölustafir) hindra að SIM-kortið sé notað í 
leyfisleysi. (U)PIN-númerið fylgir yfirleitt með SIM-kortinu. Láttu tækið biðja um 
númerið í hvert sinn sem kveikt er á því.
PIN2-númerið fylgir hugsanlega SIM-kortinu og er nauðsynlegt til að komast í 
sumar aðgerðir.
Nauðsynlegt er að slá inn PIN-númer öryggiseiningar til að fá aðgang að 
upplýsingum í öryggiseiningunni. PIN-númer undirskriftar er nauðsynlegt fyrir 
rafrænu undirskriftina. PIN-númer öryggiseiningar og PIN-númer undirskriftar 
fylgja SIM-kortinu ef það inniheldur öryggiseiningu.