Nokia 5630 XpressMusic - 22. Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

22. Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Rafhlaðan sem ætluð er til notkunar með
þessu tæki er BL-4CT. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi
hleðslutækjum: AC-6, AC-10, DC-6 og DC-10 hleðslutæki og CA-146 millistykki fyrir
hleðslutæki. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur
að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um
rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða
rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Notkun ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu, leka eða
haft aðra áhættu í för með sér.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan
tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það
aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

background image

69

U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u o g h l e ð s l u t æ k i

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í
notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla
getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki
í notkun.

Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F).
Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri
rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á
rafhlöður.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni
þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli + og -
skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur
þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur
valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið
ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila
skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, afmynda, gata eða tæta rafhlöður. Ef
rafhlaða lekur má vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu. Ef slíkt kemur fyrir
skal skola húð eða augu umsvifalaust með vatni, eða leita til læknis.

Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar,
dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.

Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða sprenghættu, eða aðra hættu. Ef þú
missir tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi
skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota
hana.

Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki
eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.