Myndsímtali komið á
Til að geta átt myndsímtal þarftu að vera með USIM-kort og vera innan
þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
myndsímtalsþjónustu og áskrift að henni. Myndsímtal getur aðeins farið fram milli
tveggja aðila og þegar ekkert annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er í gangi.
Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan farsíma eða ISDN-tengd tæki.
Þú hefur tekið kyrrmynd til að senda í stað hreyfimyndar.
Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.
1. Sláðu símanúmerið inn í biðstöðu og veldu
Myndsímtal
. Eða veldu
>
Tengiliðir
, flettu að tilteknum tengilið og veldu
Valkostir
>
Myndsímtal
.
2. Til að velja á milli þess að sýna hreyfimyndir eða að heyra einungis hljóð þegar
myndsímtal fer fram skaltu velja
Myndsending á
eða
Myndsending af
á
tækjastikunni.
Þótt þú hafnir myndsendingu í myndsímtali verður tekið gjald fyrir símtalið
sem myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni.
3. Myndsímtalinu er lokið með því að styðja á hætta-takkann.