
Samstilling
Samstilltu tölvupóstinn, dagbókina, tengiliði og verkefni í tækinu við efnið í
Microsoft Exchange-áskriftinni. Hægt er að sérsníða samstillinguna með því að
setja upp snið þar sem hægt er að gera eftirfarandi:
• Velja efnið sem á að samstilla – tölvupóst, dagbók, tengiliði, verkefni eða
sambland af þessum fjórum aðgerðum.
• Tímasetja hvenær Mail for Exchange er samstilltur sjálfvirkt. (Einnig er hægt að
samstilla handvirkt hvenær sem er.)
• Leysa úr vandamálum sem upp kunna að koma við samstillingu með því að
tilgreina hvort efnið sem er í áskrift á Microsoft Exchange-miðlaranum eða í
tækinu á að vera ráðandi ef um árekstur verður að ræða. Gæta þarf að
stillingum fyrir samstillingu. Eyðing gagna sem hluti af venjulegu
samstillingarferli fer eftir því hvaða stillingar eru valdar.
• Velja
Já
til að Secure-tenging auki öryggi milli tækisins og Exchange-
miðlarans.
• Velja hvernig viðvörun þú færð þegar tölvupóstur berst.