Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum möguleikum, bættum 
aðgerðum eða aukinni virkni. Þú getur hugsanlega nálgast þessar uppfærslur með forritinu 
Nokia Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa Nokia 
Software Updater forritið og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000, XP eða Vista 
stýrikerfi, háhraðatengingu og samhæfa gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Hægt er að hlaða niður Nokia Software Updater forritinu, og fá upplýsingar um það, á 
www.nokia.com/softwareupdate eða vefsíðu Nokia í þínu landi.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta 
beðið um uppfærslur úr tækinu. Sjá „Hugbúnaður uppfærður“, bls. 64.
Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi 
þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en 
uppfærslan er ræst.
9
F y r s t u s k r e f i n